Kennari

Ég hef aðeins vælt hér á blogginu yfir öllum verkefnunum, ígrundunum, og ritgerðunum sem ég hef verið að gera.....nú er ég búin með þetta allt og verð titluð kennari í júní. Þetta er þó ekki það besta þó ég viðurkenni að vera dauðfegin að vera búin með þetta allt, stærstu og bestu fréttirnar eru þær að ég er komin með vinnu næsta haust...... í Fjölbrautaskólanum í BreiðholtiGrin

Þar sem þetta blogg mitt var aðeins verkefni í kennslufræðinni er þetta síðasta færslan. Þeir sem vilja halda áfram að fylgjast með mér og mínum geta farið inn á síðuna hennar Sögu. Ég geng glöð inn í sumarið, sól sól skín á mig.....

 

Over and out

Sigga


Körfubolti, skóli, lasarus og afmæli

Mínir menn eru komnir í undanúrslit í Íslandsmótinu. Leikurinn í Borgarnesi var frábær og viðureign Grindvíkinga og Njarðvíkinga leggst vel í mig. Ég var ánægð með bræður mína, Lalli var góður í þessum leikjum og Ólafur sem fékk að spreyta sig mínútu og mínútu setti einn þribba á lokamínútum leiksins í gær. Til hamingju strákar. 

Verkefnavinnan gengur ágætlega, nú er staðan sú að ég stefni á að komast í gegnum þetta heil á geði, einkunnirnar skipta litlu, gegheilsan er númer eitt, tvö og þrjú. Ég kannast við nokkra hér í háskólanum sem bera þess merki að hafa lært og lesið aðeins of mikið.....þeir umma og humma, ganga um með Bónuspoka fulla af bókum, þetta eru bestu grey en augljóslega gaggala- gaggala- gú.

Sagan mín er með þráláta flensu, veiktist á föstudaginn og er ennþá að jafna sig....Gígja/Atli og Jóhann hafa reynst okkur vel, frábærar barnapíur þarna á ferð. Takk krakkar.

Um helgina ætlar mamma að halda upp á afmælið sitt, hún verður fimmtug næsta miðvikudag. Saga vill að amma sín haldi sjóræningjaveislu, amman er vön að láta allt eftir þeirri stuttu en ég hef það á tilfinningunni að hún láti ekki eftir henni í þetta skipti. Við keyptum gjöf handa gömlu ömmunni, Saga vildi auðvitað vita hvað væri í pakkanum, pabbinn var fljótur að átta sig og sagði að þetta væri bolti. Það var líka eins gott því þegar sú stutta talaði við ömmu sína síðar um daginn sagði hún henni að við hefðum keypt pakka og það væri bolti. 

 

Sigga


Ókláruðu verkefnin mín.......

átta íhuganir......

16 verkefni.....

skila leiðarbók (30 bls.)

skila ferilmöppu (um 100 bls.)

.......ég er búin að kenna og get því snúið mér að þessu.....síðan pakka ég og flyt héðan...get ekki beðið.....

 

Lifið heil

Kveðja Sigga 


Best að blogga

Já það er sko komin tími á eitt stk. blogg frá Sigríði... þó fyrr hefði verið. Allir eru hressir og kátir á Eggertsgötunni. Í síðustu viku fór Gulli í vinnuferð og á Liverpool-leik með pabba sínum. Mæðgurnar höfðu það gott á meðan en fannst ógurlega gott að fá manninn/pabbann sinn heim á sunnudeginum.

Ég hef lokið fyrr kennsluviku minni í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hún gekk vonum framar en ég fékk að kenna barnabókmenntir. Ég fór með nemendahópinn í leikhús, við sáum Sitji guðs engla. Ég fékk frjálsar hendur við úrvinnslu verksins og það var bara gaman skal ég segja ykkur. Á morgun kenni ég stafsetningu og íslensku 103....þeir sem þekkja mig vita að hæfileikar mínir í stafsetningu eru gríðarlegir.....undirbúningur er  því nauðsynlegur og hef ég legið yfir verkefnum og orðabókum frá því klukkan níu í morgun. Fyndið að undirbúningur fyrir 60 mínútna kennslustund getur tekið fjórar klukkustundir......hvað er ég búin að koma mér í? En þetta er gaman, er það ekki tilgangurinn með þessu öllu eða eru það kannski peningarnir.....þá er ég á rangri hillu, úpps! 

 

Hvað ætli ég láti líða langt á milli blogga?

Kveðja Sigga 


Hellú

Skólinn byrjar með látum, verkefni og fyrirlestar, áhorf og aðstoð í MH. Ég er sein í gang, er enn í þriðja gír og á voða erfitt að setja í þann fimmta. Mér finnst svo miklu skemmtilegra að horfa á ,,Strákana okkar" og núna sit ég og horfi á ,,Still standing" með Gullanum mínum...eða horfi á??? Við sitjum hér hvort með sína fartölvuna ;-)

Föstudagar eru góðir dagar til að byrja á einhverju....því ætla ég að byrja að læra á morgun, nokkrar íhuganir og ef ég verð í miklu stuði þá geri ég kannski eina eða tvær leiðarbækur.

Annars vorum við að kaupa okkur íbúð. Vúhú!!!! Flytjum í júní...

 Jæja þetta er gott í bili, kveðja Sigga


Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla

Það gamla var gott ár hjá mér og mínum. Allar yndislegu stundirnar sem ég átti með fjölskyldu minni og vinum standa uppúr. Annað eftirminnilegt: afmælið mitt, námið í kennslufræðinni, ferðin til Danmerkur, nýja vinnan hans Gulla, Saga á nýjum leikskóla, rennblautt sumar, við í útilegu í nýja tjaldinu okkar, ég í KR-búningi þó með gult og blátt hjarta og fleira og fleira og fleira. 

Á nýju ári er ég þakklát fyrir það sem ég hef. Ég á yndislega fjölskyldu, frábæra vini, heilsu, húsaskjól, mat og föt. Umræðan um stríð, fátækt, heim sem versnandi fer og annað slíkt hefur verið áberandi á því liðna...ætli fréttirnar á því nýja verði betri, ég óska þess. Þó er aldrei algjör friður og því miður eru alltaf einhverjir sem eiga ekki ofan í sig og á....það er því miður ekkert við því að gera. Fréttirnar á árinu voru í ár neikvæðari en oft áður ég sendi mína ósk um að þær verði jákvæðari á nýja árinu. Í lok þess gamla var sá ógurlegi hengdur....ætli því fylgi friður? Ég get farið á www....... og horft á þessi ósköp ef ég vil, hef ekki áhuga því. Hugsið ykkur í dag er árið 2007 og mannfólkið er enn að hengja hvert annað...og forystumenn þjóða skiptast á að senda menn með byssur og sprengjur inn í lönd þar sem blásaklaust fólk deyr, ef ekki eftir byssukúlur og sprengjubrot þá af hungri eða sjúkdómum sem fylgja ógeðinu. Ég hata stríð. Hvað vinnst með stríði? Ég hef aldrei skildið rökin á bak við stríðsrekstur og mun aldrei skilja þau. Ég hata stríð.

Yfir í allt annað og skemmtilegra, gærdagurinn var ljúfur. Við fórum í veislu í hádeginu. Tilefnið var að Sigrún Ágústsdóttir og Guðlaugur Óskarsson, amma og afi hans Gulla áttu 50 ára brúðkaupsafmæli. Til hamingju með það Sigrún og Gulli. Við kvöddum það gamla á Glæsivöllunum. Ég komst að því að litla stelpan okkar er sprengjusjúk..... mikið vona ég að það eldist fljótt af henni. Eftir að nýja árið gekk í garð sátum við og spjölluðum við mömmu, pabba og afa til klukkan hálf fimm...við ætluðum út á lífið en ellin er greinilega farin að segja til sín og vil ég meina að hún hafi dregið úr okkur allan mátt.

Þetta fyrsta blogg ársins er orðið ansi langt og persónulegt....kannski að þetta sé það sem koma skal árið 2007.

Ég er opnari á nýju ári, yfir og út  Sigga Anna  


jólablogg

Við fengum yndilsega gesti til okkar í gær, tilefnið var hið árlega spilakvöld Bakkusa og lífsförunauta, við unnum ekki að þessu sinni.....helv...;-)

Ég sit hér og anga eins og kæst skata, fórum til ömmu og afa hans Gulla í kvöld og borðuðum þennan þjóðlega, ljúffenga og bragðmikla fisk...hákarl, rófur og kartöflur með. Saga var í aðeins of miklu fjöri og náði að slasa sig í boðinu.Hún vældi mikið sem hún er ekki vön að gera þegar hún meiðir sig og þegar við komum hér heim var hún svo skrítin....vissum um leið að eitthvað var að og því brunuðum við upp á slysó. Við komum út löngu síðar með lita stelpu með hönd í fatla. Það er sprunga ofarlega í upphandleggnum...elsku besta var svo dugleg hjá lækninum, svo kurteis og dugleg að svara þegar læknirinn spurði hana að einhverju. Á leiðinni á slysó sagði hún við mig....,,mamma takk fyrir að hjálpa mér"...ég á eftir að éta hana einn daginn. Jæja ég ætla í bað og lúlla svo í hausinn minn.             Ég óska ykkur gleðilegra jóla, kveðja Sigga

 


Besta lagið mitt...

www.baggalutur.is/party.php


Á morgun klukkan 17:00.....

verð ég komin í jólafrí. Ég get ekki beðið. Ég nenni ekki að læra meira undir þetta próf en það byrjar ekki fyrr en klukkan 13:30 á morgun svo ég neyðist til þess.....Ég fæ gæsahúð við tilhugsunina um að þurfa bara að hugsa um jólin...ég get hætt að hugsa unglingavandamál, þroska unglinga, líkamlegar-, félagslegar- og sálfræðilegar breytingar sem verða á unglingsárunum...... Áttu ungling? Láttu mig um hann ég held sé að verða sérfrærðingur í þessum málum....komdu samt ekki með hann fyrr en eftir áramót því nú eru það jólin og auðvitað músin mín sem er yndislegust og best, ja og auðvitað Gulli minn sem er næst yndislegastur og bestur...     

Ef þið heyrið fagnaðaróp við Landsspítalann (prófið er þar) klukkan 17:00 á morgun þá er það ég......yfir og út Sigga

 

 


Stekkjastaur til byggða í kvöld

Ég get ekki beðið til morguns....Stekkjastaur kemur til byggða í nótt með gjafir og gott handa góðum börnum. Það er mjög langt síðan ég var virkilega spennt fyrir þessu jólasveina-stússi, en nú fæ ég að upplifa þetta aftur í gegnum dóttur mína. Kertasníkir kom reyndar á gluggann okkar jólin 2004. Hann vakti Gulla og bað hann að gefa mér blað frá sér, á því stóð að ég ætti frátekið nudd í Bláa Lóninu.... ég hef greinilega ekki hagað mér nógu vel fyrir síðustu jól því þá fékk ég ekki neitt.

Ég er búin að vera ótrúlega dugleg að lesa í dag....var ekki dugleg um helgina. Sem dæmi þá eyddi ég fjórum klukkustundum í að tapa fyrir Snæfellsliðinu í bikarleik í gær...svona er þetta!!!!

Jæja ég ætla að ná í músina mína á leiksólann,

yfir og út Sigga Anna


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband